Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur tekið tilboði Landsbankans um kaup bankans á rekstrareiningunum Vírneti í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleininga í Reykholti en þessar rekstrareiningar voru sá hluti af rekstri BM Vallár hf. sem fjármagnaður var af Landsbankanum.
Þá hefur skiptastjóri þrotabúsins gert samkomulag við Arion banka um að bankinn taki yfir hluta af steypustarfsemi BM Vallár. Segir bankinn að með kaupunum sé áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins tryggð, fjöldi starfsmanna haldi störfum sínum og óvissu um stórframkvæmdir sé eytt.
Þessar framkvæmdir eru t.d. við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu og Bolungarvíkur- og Héðinsfjarðargöng. Hjá BM Vallá störfuðu 200. Segir bankinn, að starfsemi BM Vallár á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi sé nú tímabundið í eigu Arion banka, auk færanlegrar steypustöðvar en stefnt sé að því að selja fyrirtækið sem allra fyrst.
Nýtt rekstarfélag í eigu Landsbankans mun taka við rekstri eininganna, sem bankinn keypti, frá og með 25. maí. Nýir stjórnendur taka við rekstrinum frá og með þeim degi. Framkvæmdastjóri nýs rekstrarfélags verður Stefán Logi Haraldsson, núverandi aðstoðarforstjóri BM Vallár og fyrrverandi framkvæmdastjóri Límtré-Vírnets.
Með þessu kaupum tekst að tryggja 66 störf í Borgarbyggð, Reykholti og að Flúðum og verður öllum starfsmönnum á þessum stöðum boðið starf í hinu nýju félagi.
Landsbankinn hyggst selja rekstrarfélagið innan 6 mánaða og verður sú sala og fyrirkomulag hennar auglýst og kynnt nánar eins skjótt og auðið er.
Fulltrúar Landsbankans hafa þegar kynnt fyrirætlanir sínar fyrir starfsmönnum, verkalýðsfélögum og sveitarstjórnarmönnum á viðkomandi svæðum.
Límtré/Vírnet byggir á rekstri gamalgróinna fyrirtækja. Límtré á Flúðum framleiðir burðarvirki úr límtré og hefur verið leiðandi á íslenskum markaði og einnig flutt út framleiðslu sína. Vírnet í Borgarbyggð framleiðir klæðningar, þakstál og festingar í byggingariðnaði og Yleiningar úr Reykholti framleiða einangraðar stáleiningar til bygginga.