Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí hækkaði um 0,41% frá apríl. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,29% frá apríl.
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,1%.
Kostnaður
vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,2% (vísitöluáhrif 0,15%) á milli
apríl og maí, þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,18% en af
lækkun raunvaxta -0,03%. Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um
9,8% (0,10%) á sama tímabili en verð dagvara lækkaði um 0,6% (-0,11%).
Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 5,0% verðbólgu á ári (6,6%
fyrir vísitöluna án húsnæðis), að því er segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili hefur heldur minnkað milli mánaða en í apríl var hún 8,3%. Hækkun vísitölu neysluverðs milli mánaða er talsvert meiri en spáð hafði verið. Greining Íslandsbanka spáði 0,2% hækkun og MP banki spáði 0,1% hækkun.