Skrifað var undir tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning á milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands í morgun. Fjárhæð samningsins er 66 milljarðar króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júan. Samningurinn gildir í þrjú ár og hægt verður að framlengja hann að gefnu samþykki beggja aðila.