Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að lækka í dag og nemur lækkunin á NYMEX markaðnum í New York 18 sentum á olíu til afhendingar á ágúst. Er tunnan nú á 76,33 Bandaríkjadali. Í Lundúnum hefur Brent Norðursjávarolía lækkað um 38 sent og er á 76,09 dali tunnan.