Flest tuttugu helstu iðnríkja heims ætla að minnka fjárlagahalla um helming á næstu þremur árum, að sögn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Leiðtogar G20 ríkjanna funda nú í Toronto í Kanada. Verður þetta hluti af loka ályktun fundarins, að sögn Merkel.