Verð á hráolíu lækkaði í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun en einhverjir óttast áhrif hitabeltisstormsins Alex á olíuvinnslu í Mexíkóflóa. Í New York lækkaði verð á hráolíu til afhendingar um 19 sent og er 78,06 dalir tunnan. Brent Norðursjávarolía lækkaði um 13 sent og er 77,46 dalir tunnan.