Gengi krónunnar styrktist um 0,2% í dag og er gengisvísitalan 214 stig. Afar lítil viðskipti eru á millibankamarkaði með gjaldeyri, líkt og í síðasta mánuði. Evran er 156,70 krónur, Bandaríkjadalur er 124,76 krónur, pundið er 189,20 krónur og danska krónan er 21,035 krónur.