Stefán Hilmar Hilmarsson, fjármálastjóri 365 fjölmiðlasamsteypunnar og fyrrverandi fjármálastjóri Baugs Group, var úrskurðaður gjaldþrota af Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. júlí síðastliðinn.
Kemur þetta fram í Lögbirtingablaðinu.
Stefán hefur lengi verið náinn samstarfsmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.