Allur arður Björgólfs til kröfuhafa

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. mbl.is/Kristinn

Allur arður af eignum Björgólfs Thors mun renna til kröfuhafa hans þar til hans skuldir hafa verið gerðar upp að fullu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félag Björgólfs, Novator, sendi á fjölmiðla í dag.

Afráði Björgólfur að selja eignir sínar mun allur söluhagnaður að sama skapi renna til kröfuhafa. Samkvæmt tilkynningunni ætlar Björgólfur að greiða sínar skuldir að fullu með engum eftirgjöfum.   Björgólfur verður áfram hluthafi í Actavis, símafyrirtækinu Play, CCP og Verne Holdings. Síðastnefnda fyrirtækið hefur undanfarið verið til umræðu vegna umdeilds fjárfestingarsamnings við íslensk stjórnvöld.

Samhliða skuldauppgjöri Björgólfs sjálfs lýkur fjárhagslegri endurskipulagningu samheitalyfjaframleiðandans Actavis. Hluti Actavis mun færast til kröfuhafa fyrirtækisins, en samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust frá Novator verður Björgólfur Thor áfram meirihlutaeigandi að félaginu.

Björgólfur gaf ekki kost á viðtali. Í tilkynningunni er þó haft eftir honum að hann hafi á tímabili staðið nærri persónulegu gjaldþroti. Hann hyggist þó á næstu árum vinna í þágu kröfuhafa til að gera upp við þá að fullu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK