Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí lækkaði um 0,66% frá fyrra mánuði. Þetta er mesta lækkun vísitölunnar milli mánaða síðan í mars 1986, að sögn Hagstofunnar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8%. Hefur árshækkun vísitölunnar ekki verið minni frá því í október 2008 þegar verðbólgan mældist 4,5%.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 343,6 stig og lækkaði hún um 0,78% frá júní.
Hagstofan segir, að sumarútsölur séu í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,3% (vísitöluáhrif -0,68%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað eins og áður sagði um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,6% sem jafngildir 2,3% verðhjöðnun á ári.