Kreditkortavelta Íslendinga á erlendri grundu sýnir svo ekki verður um villst að Íslendingar eru byrjaðir að taka upp veskið á nýjan leik í útlöndum enda hefur kaupmáttur landans á erlendri grundu aukist undanfarið, samkvæmt því sem fram kemur í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Segir greiningardeildin að þetta vera vegna styrkingu krónunnar og utanlandsferðum fari fjölgandi eftir að hafa dregist gríðarlega saman í kjölfar bankahrunsins. Í júlí nam kreditkortavelta landans erlendis 3,6 milljörðum króna og jókst um 37% að raungildi frá sama mánuði fyrir ári síðan. Í júní var aukning 28% en í júní og júlí í fyrra var um 60% samdráttur í þessari veltu.