Verð á hráolíu lækkaði lítillega í rafrænum viðskiptum í Asíu í nótt og morgun eftir að bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna hafði birt upplýsingar um að hægt hafi á efnahagsbatanum þar í landi.
Verð á hráolíu til afhendingar í september lækkaði um 40 sent og er 79,85 dalir tunnan í New York.
Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 35 sent og er 79,25 dalir tunnan í Lundúnum.