Vaxandi hagvöxtur á evrusvæðinu nýtist, að mati Greiningar Íslandsbanka, íslenska hagkerfinu vel. Hagvöxtur á evrusvæðinu var 1% á milli fyrsta og annars ársfjórðungs í ár. Er þetta meiri hagvöxtur en spáð hafði verið. Sami hagvöxtur mældist í aðildarríkjum ESB að meðaltali á tímabilinu. Hagvaxtartölur fyrir annan ársfjórðung hafa ekki verið birtar fyrir Ísland.
Er þetta mesti hagvöxtur sem mælst hefur á evru-svæðinu frá árinu 2006. Hagvöxturinn hefur verið að taka við sér á svæðinu en á fyrsta ársfjórðungi í ár var hagvöxturinn 0,2% þ.e. bæði á evrusvæðinu og í ESB, samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka.
Meiri hagvöxtur á evru-svæði en Bandaríkjunum
„Afar mismunandi gangur er í hagkerfum aðildarríkja evrunnar og ESB. Þannig var verulegur hagvöxtur eða 2,2% í Þýskalandi á öðrum ársfjórðungi. Er þetta mesti hagvöxtur á einum ársfjórðungi sem þar hefur mælst frá sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands 1990. Var þessi hagvöxtur verulega umfram spár.
Hagvöxturinn var einnig umfram spár í Frakklandi sem jókst um 0,6% á öðrum ársfjórðungi. Þá var ágætur hagvöxtur í Bretlandi á fjórðungnum eða 1,1%. Samdráttur var hins vegar 1,5% í Grikklandi en erfiðleikarnir sem það hagkerfi hefur gengið í gengnum undanfarið hefur augljóslega hægt á gangi efnahagsstarfseminnar þar í landi.
Hagvöxtur á evrusvæðinu var meiri en í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi þar sem vöxturinn var 0,6%. Styrktist evran nokkuð við tíðindin gagnvart dollaranum en hún hefur verið að lækka allhratt gagnvart dollaranum undanfarið. Hlutabréf evrópskra fyrirtækja tóku einnig nokkurn fjörkipp í kjölfar birtingar hagvaxtartalnanna," segir í Morgunkorni.
Hjálpar við að endurvekja hagvöxt á Íslandi
Greining Íslandsbanka segir að ferðaþjónusta á Íslandi njóti þess nú að aukin velmegun er á evrusvæðinu og almennt í ríkjum ESB.
„Bætist það við þau áhrif sem lágt raungengi hefur á gang greinarinnar.
Svipað má segja um aðra útflutningsstarfsemi en ESB ríkin eru stærsta
viðskiptasvæðið í utanríkisviðskiptum Íslendinga. Vaxandi hagvöxtur í
ríkjum ESB hjálpar því til við að endurvekja hagvöxt hér á landi," segir ennfremur í Morgunkorni.