Hagdeild ASÍ bendir á það á vef sambandsins að innfluttar mat- og drykkjarvörur hækka um 1% í ágúst á frá fyrra mánuði á sama tíma og gengi krónunnar hefur styrkst nokkuð. Húsgögn og ýmiss heimilisbúnaður lækka hins vegar um tæplega 1% frá fyrra mánuði.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,25% milli júlí- og ágústmánaðar sem helst má rekja til verðhækkana á fötum og skóm sem hækkuðu um 4,6% milli mánaða og ráða þar útsölulok í verslunum að líkindum mestu.
Á ársgrundvelli mældist verðbólgan 4,5% í ágúst samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofa
Íslands birti í morgun. Verðbólga fer nú minnkandi og gera má ráð fyrir
áframhaldandi þróun í þá átt á næstu mánuðum, samkvæmt vef ASÍ. Verðbólgan var síðast um
4,5% haustið 2007.