Hagnaður Haga á rekstarárinu 2009/10 nam 44 milljónum króna en rekstrartekjur ársins námu 68,3 milljörðum króna. Eigið fé félagsins nam 2519 milljónir króna í lok reikningsársins, sem lauk í febrúar, og
eiginfjárhlutfall var 10,3%.
Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 4034 milljónum króna.
Stjórn Haga leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa vegna ársins.