Verð á gulli hækkaði í dag á markaði í Lundúnum. Komst verðið í 1267 dali únsan og hefur aldrei verið hærra.
Margir fjárfestar hafa ákveðið að fjárfesta frekar í gulli en hvikulum verðbréfum og er það ástæðan fyrir því að gullverð hefur hækkað stöðugt undanfarna mánuði.