Sigurður stjórnarformaður Icelandair Group

Sigurður Helgason.
Sigurður Helgason. mbl.is/Jim Smart

Sigurður Helgason, fyrrum forstjóri Flugleiða, var endurkjörinn formaður stjórnar Iceladair Group í dag og Finnbogi Jónsson var kjörinn varaformaður stjórnar.

Stjórnarkjör fór fram á hluthafafundi í dag. Í stjórnina voru kjörin Auður Finnbogadóttir, ráðgjafi, Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri hjá Skiptum, Sigurður Helgason og Úlfar Steindórsson, framkvæmdastjóri Toyota á Ísland. Í varastjórn voru sjálfkjörin Herdís Dröfn Fjeldsted,  Magnús Magnússon og Vilborg Lofts.

Í ágúst var tilkynnt að fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group væri lokið en  Framtakssjóður Íslands  g Lífeyrissjóður verzlunarmanna  gerðu í júní samkomulag um að fjárfesta í Icelandair Group fyrir 4 milljarða króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK