Segir Deutsche Bank ekki hluthafa í Actavis

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson.

Björgólfur Thor Björgólfsson segir á vef sínum, að Deutsche Bank sé ekki hluthafi í lyfjafyrirtækinu Actavis. Heimild, sem bankinn hafi fengið hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um yfirtöku á Actavis, sé formsatriði vegna ákvæða í samningum um fjárhagslega endurskipulagningu Actavis en efnisatriði þess samnings séu ekki opinber. 

„Það sem upplýst hefur verið og liggur fyrir er að ég er stærsti hluthafinn í félaginu og sit í stjórn þess," segir Björgólfur Thor.

Hann segir að í fréttaskrifum í vikunni, t.d. í Morgunblaðinu, sé því haldið fram að Deutsche Bank hafi verið veitt heimild fyrir yfirtöku bankans á íslenska samheitalyfjafyrirtækinu Actavis. Áður hafi fjölmiðlar greint frá því í byrjun september að Deutsche Bank hefði tilkynnt fjárhagslega endurskipulagningu lyfjafyrirtækisins til samkeppnisyfirvalda Evrópusambandsins.

„Talsmaður minn, Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsti þá að tilkynning Deutsche Bank væri tæknilegt atriði, sem lyti að því að fá formlegt samþykki fyrir samningum um fjárhagslega endurskipulagningu Actavis. Þeir samningar hafa nú verið samþykktir með formlegum hætti, en í því felst engin „yfirtaka“ bankans á Actavis," segir Björgólfur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK