Verð á hráolíu lækkaði í viðskiptum í Asíu í morgun en lækkunin var hins vegar lítil enda benda nýjar upplýsingar um vísitölu framleiðslu í Kína til þess að staðan sé betri þar en áður var talið. Lækkað verð á hráolíu til afhendingar í nóvember um fimm sent í New York og er 77,81 dalur tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á Brent Norðursjávarolíu lækkað um 27 sent og er 80,50 dalir tunnan.