Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á ósk bráðabirgðastjórnar Avant hf. um að fá að leita nauðasamnings við lánardrottna félagsins. Samkvæmt tillögu að nauðasamningi tekur NBI banki félagið yfir og eignast 99% hlut á móti 1% hlut félagsins sjálfs. Þá fá helstu lánardrottnar félagsins greidd 5,6% upp í kröfur sínar.
Í tillögunni er einnig gert ráð fyrir, að að almennir viðskiptavinir félagsins, sem eiga mögulega kröfu á félagið vegna ólögmætra tenginga samningsskuldbindinga við gengi erlendra gjaldmiðla, fái lúkningu á kröfum sínum með eftirfarandi hætti:
Bráðabirgðastjórn félagsins gerir ráð fyrir að lögbundið nauðasamningaferli fyrir héraðsdómi taki um 3 mánuði. Verði nauðasamningur staðfestur fyrir dómi kemur til greiðslu krafna innan 6 vikna frá staðfestingu nauðasamnings.