Lán, sem eru í vanskilum eða nálægt vanskilum, eru tæplega 65% af heildarútlánum bankakerfisins hér á landi ef miðað er við nafnvirði lánanna.
Bankarnir hafa hins vegar afskrifað hluta af lánunum og er bókfært virði lélegra lána um 45 prósent af heildarútlánum bankakerfisins, að því er segir í Morgunblaðinu í dag.
Kemur þetta fram í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna þriðju endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands.