Gengi krónunnar veiktist um 0,3% í dag og er gengisvísitalan nú 205,60 stig. Bandaríkjadalur er skráður 111,04 krónur og styrktist um tæpt 1% gagnvart krónunni í dag. Evran er 155,50 krónur, pundið er 177,96 krónur og danska krónan stendur í 20,854 krónum, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.