Øygard með 19 milljónir í mánaðartekjur í fyrra

Svein Harald Øygard,
Svein Harald Øygard, mbl.is/Ómar

Seðlabankastjórinn fyrrverandi, Svein Harald Øygard, hafði tæplega 11,9 milljónir norskra króna í tekjur í fyrra. Miðað við gengisskráningu Seðlabanka Íslands nemur það um 228 milljónum íslenskra króna, eða um 19 milljónum króna á mánuði.

Þetta kemur fram í álagningarskrá norskra skattayfirvalda, sem aðgengileg er á netinu. Øygard gegndi stöðu seðlabankastjóra á Íslandi frá febrúar 2009 og fram til loka ágústmánaðar sama árs. Í álagningarskránni kemur fram að heildareignir Øygard nemi um 23,5 milljónum norskra króna, eða sem nemur 451 milljón íslenskra króna.

Gylfi Magnússon, þáverandi viðskiptaráðherra, upplýsti í svari við fyrirspurn á Alþingi í febrúar síðastliðnum að Øygard hefði haft tæplega 1,6 milljónir í laun á mánuði á meðan hann gegndi starfi seðlabankastjóra. Að auki var greiddur ýmis kostnaður við uppihald og ferðalög, auk tveggja mánaða biðlauna. thg@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK