Skráningum einkahlutafélaga fækkaði um 34% í september frá sama mánuði árið áður. Á sama tímabili voru 53 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 86 fyrirtæki í september 2009.
Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 1233 fyrstu 9 mánuði ársins, að sögn Hagstofunnmar og hefur nýskráningum fækkað um 35% frá sama tímabili árið 2009 þegar 1895 ný einkahlutafélög voru skráð. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í flokknum heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum.
Flest gjaldþrot í september voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 9
mánuði ársins 2010 hafa 674 fyrirtæki orðið gjaldþrota 674 sem er rúmlega 5% aukning
frá sama tímabili árið 2009 þegar 641 fyrirtæki voru tekin til
gjaldþrotaskipta.