Vöruskiptin hagstæð um 10,6 milljarða

Ál er stór hluti af útflutningi Íslendinga.
Ál er stór hluti af útflutningi Íslendinga.

Vörur voru fluttar út fyrir 49,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,1 milljarð króna í september, að sögn Hagstofunnar. Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna. Er þetta ívið minni afgangur en bráðabirgðatölur gáfu til kynna. 

Í september 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 9,5 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu níu mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 415,8 milljarða króna en inn fyrir 327,2 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 88,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. 

Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 51,3 milljörðum eða 14,1% meira á föstu gengi  en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 36,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu níu mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 25,7 milljörðum eða 8,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK