Enn svigrúm til vaxtalækkunar

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn Pétursson aðalhagfræðingur
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn Pétursson aðalhagfræðingur mbl.is/Golli

Peningastefnunefndin telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar
til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar
stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Áætlanir
um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu
um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma litið.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands en í morgun var greint frá því að vextir bankans yrðu lækkaðir um 0,75 prósentustig.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að þessi vaxtaákvörðun marki ákveðin söguleg tímamót. Virkir vextir bankans eru nú 4,6% og hafa aldrei verið jafn lágir í sögu bankans, segir Már.

Lægstu vextir hingað til voru annars vegar í febrúar 2003 og hins vegar mars 1994 er þeir voru 5,1%. 

Samkvæmt spánni sem birt er í Peningamálum í dag, verður þróttur innlends efnahagslífs í ár og á næsta ári heldur minni en Seðlabankinn spáði í ágúst. Enn er þó gert ráð fyrir að efnahagsbati hefjist á seinni hluta ársins.

Verðbólga hefur hjaðnað hraðar en spáð var í ágúst og gert er ráð fyrir að verðbólga verði við markmið bankans í lok árs, að hún verði komin niður fyrir 2% á næsta ári, en aukist síðan í átt að markmiði.

Frá fundi peningastefnunefndar í september hefur viðskiptavegið meðalgengi krónu hækkað um tæplega 1%, en krónan hefur veikst lítið eitt gagnvart evru. Eins og vænst var hafa reglubundin kaup Seðlabankans á gjaldeyri, sem hófust 31. ágúst síðastliðinn, ekki haft veruleg áhrif á gengi krónunnar.

Gjaldeyrishöftin, þróun viðskiptakjara og annarra þátta sem áhrif hafa á viðskiptajöfnuð, ásamt aðhaldsstigi peningastefnunnar í samanburði við helstu viðskiptalönd halda áfram að styðja við gengi krónunnar.

Peningastefnunefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið, að því er segir í yfirlýsingu frá nefndinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK