Mikil fasteignasala í vikunni

mbl.is

Alls var 86 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 29. október til og með 4. nóvember. Þar af voru 62 samningar um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.325 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 173 milljónir króna og meðalupphæð á samning 14,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 212 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 113 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,7 milljónir króna, samkvæmt frétt á vef Þjóðskrár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK