Pálmi fluttur til Lúxemborgar

Pálmi Haraldsson.
Pálmi Haraldsson.

Pálmi Haraldsson, athafnamaður, hefur flutt lögheimili sitt  til Lúxemborgar, að því er kemur fram í yfirlýsingu, sem birt er á vef hæstaréttar Manhattan. Segist Pálmi þar hafa tilkynnt Hagstofu Íslands um flutninginn í ágúst sl.

Pálmi segir í yfirlýsingunni, að hann hafi aldrei búið eða starfað í New York. Hann  hafi heimsótt Bretlands nokkrum sinnum á árunum 2009 og 2010 til að sinna ákveðnum verkefnum tengdum viðskiptum. Síðast hafi hann verið þar 6. júlí. 

Í yfirlýsingu, sem Pálmi sendi réttinum á Manhattan í júlí, sagðist hann búa á Bretlandi til að sinna viðskiptahagsmunum. Hefði hann sent íslensku hagstofunni tilkynningu um flutninginn í árslok 2009. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK