Raunvirði eigna Landsbanka eykst

Landsbanki Íslands hf. segir, að auknar endurheimtur á eignasafni bankans á þriðja ársfjórðungi ársins hafi numið 18 milljörðum króna í erlendum myntum frá öðrum ársfjórðungi.

Segir slitastjór bankans, að raunverðmæti eignasafnsins hafi hækkað í erlendum myntum um tæplega 130 milljarða króna frá 30. apríl 2009 til 30. september 2010, eða að meðaltali um tæplega 21 milljarð króna í hverjum ársfjórðungi.

Langstærstur hluti eignasafnsins sé erlendis og því gefi fjárhæðir í erlendum myntum raunhæfan samanburð á virðisaukningu þess. Aðeins rúm 8% af heildareignum bankans sé í íslenskum krónum. Í erlendum myntum séu endurheimtur bankans um 93% af forgangskröfum, en vegna mikillar hækkunar íslensku krónunnar á tímabilinu séu endurheimtur í þeirri mynt áætlaðar 86%
þann 30. september síðastliðinn.

Heildareignir bankans voru metnar á 1138 milljarða króna þann 30. september síðastliðinn en voru metnar á 1100 milljarða króna þann 30. apríl 2009.

„Mjög jákvætt er að reiðufé innheimtist hraðar en fyrri áætlanir bankans gerðu ráð fyrir. Samkvæmt áætlunum bankans í byrjun árs 2010 var gert ráð fyrir að reiðufé næmi um 319 milljörðum króna í árslok sem jafngildir um 286 milljörðum króna á gengi 30. september sl. Reiðufé bankans í lok september sl. nam um 293 milljörðum króna, eða hærri fjárhæð en áætlað var í ársbyrjum að
staða reiðufjár væri í árslok. Af þessu sést að árangur bankans hvað þetta varðar er vel umfram fyrri áætlanir," segir í tilkynningu frá slitastjórninni.

Heimasíða Landsbanka Íslands hf. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK