Skiptastjóri GH1 ehf., sem áður hét Capacent ehf., hyggst rifta kaupum starfsmanna á rekstri fyrirtækisins.
Greint var frá því í september að starfsmenn fyrirtækisins hefðu keypt reksturinn út úr gamla félaginu, sem er skuldum vafið eftir yfirtökur á þensluárum, og sett á nýja kennitölu. Í Morgunblaðinu í dag segist forstjóri Capacent ekki eiga von á því að mikið komi út úr riftunarmálinu.