EJS og rekstrarlausnir Skýrr hafa verið sameinuð undir nafni EJS, sem verður eftirleiðis rekið sem eitt af þremur tekjusviðum Skýrr. Sameiningin var tilkynnt starfsfólki í dag. Starfsfólk sameinaðs fyrirtækis Skýrr og EJS er um 470 talsins.
Eyjólfur Magnús Kristinsson verður framkvæmdastjóri EJS. Eyjólfur Magnús stýrði áður þjónustuveri Vodafone, en hefur undanfarna mánuði stýrt rekstrarlausnum Skýrr, samkvæmt tilkynningu.