Vextir Íbúðalánasjóðs verða óbreyttir eftir útboð á íbúðabréfum, sem fór fram í gær. Verða útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði 4,50% og 5% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.
Vegnir vextir í útboðinu í gær og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,6%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,45%, vegna útlánaáhættu 0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.