Þorsteinn M. Jónsson hefur náð samkomulagi við Arion banka um endurskipulagningu skulda félaga í hans eigu, að því er heimildir Viðskiptablaðsins herma. Samkomulagið mun gera honum kleift að halda stærstu eign hans, drykkjarfangarisanum Vífilfelli.
Það er þó háð því að önnur fjármálafyrirtæki, sem eiga kröfu á Þorstein, samþykki samkomulagið og falli frá hluta af kröfum sínum. Á meðal þeirra eru Byr hf. Samþykki Byrs liggur ekki fyrir, samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins.