Segja frétt um Vífilfell ranga

Arion banki
Arion banki

Arion banki hefur sent frá sér tilkynningu um að frétt Viðskiptablaðsins um að búið sé að ganga frá samningi við Þorstein M. Jónsson um að hann haldi Vífilfelli sé röng. Í tilkynningunni er tekið fram að samkomulagið við Þorstein sé á lokastigum.

„Tilkynning frá Arion banka

Vegna fréttar á vef Viðskiptablaðsins um samkomulag bankans við Þorstein M. Jónsson vill Arion banki koma eftirfarandi á framfæri:

Frétt Viðskiptablaðsins er röng. Ekki var haft samband við fulltrúa Arion banka vegna vinnslu fréttarinnar.

Bankinn hefur um nokkurt skeið unnið að samkomulagi við Þorstein M. Jónsson vegna skulda hans og félaga honum tengdum við bankann. Samkomulagið er á lokastigum en ekki er tímabært að greina frá efnisatriðum þess að svo stöddu.

Arion banki mun senda frá sér tilkynningu þar sem fram koma öll helstu efnisatriði samkomulagsins eins fljótt og unnt er."
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK