Hagstofan segir í endurskoðaðri þjóðhagsspá, að útlit sé fyrir að landsframleiðsla dragist saman um 3% árið 2010, en
vaxi um 1,9% árið 2011 og 2,9% árið 2012.
Segir Hagstofan, að samdráttur í einkaneyslu virðist lítill á þessu ári
en einkaneyslan vaxi næstu árin. Einkaneysla verði þó áfram með minnsta móti á meðan heimilin reyni að ná viðspyrnu gegn auknum skuldum og tekjutapi. Fyrirtækin glími einnig við erfiðan skuldavanda, sem geti í
einhverjum tilvikum leitt til áframhaldandi vanda heimila.
Hagstofan reiknar með að fjárfesting taki að vaxa árið 2011, jafnvel þótt ekki sé gert ráð fyrir framkvæmdum við álver í Helguvík fyrr en 2012, en sé enn lág í sögulegu samhengi. Samdráttur í samneyslu haldi áfram næstu ár.
Þá segir Hagstofan að verðbólga hafi hjaðnað árið 2010 og verði við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í upphafi næsta ári. Afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum verði umtalsverður út spátímann enda verði gengi krónunnar áfram veikt þótt raungengið styrkist lítillega.
Spáð er 7,3% atvinnuleysi á næsta ári og 5,6% árið 2012.
Helstu óvissuþættir í þjóðhagsspánni eru þessir: