Sænski viðskiptavefurinn e24.se segir, að lýsingar Hermans Van Rompuys, forseta Evrópusambandsins, á ástandinu í efnahagsmálum evruríkja séu farnar að minna á yfirlýsingar upplýsingamálaráðherra Íraks eftir innrásina þar í landi í mars 2003. Sá ráðherra fékk viðurnefnið Grín-Alí.
Vefurinn vitnar í nokkur ummæli Van Rompuys á síðustu mánuðum. „Evrópu hefur gengið vel að takast á við kreppuna," sagði hann í janúar. „Grikkland mun ekki lenda í greiðslufalli," sagði hann í mars. Í nóvember sagði hann að Írland hefi ávallt tekist vel að leysa úr vandamálum sínum varðandi ríkisfjármál án utanaðkomandi aðstoðar og nú um helgina sagði hann í Stokkhólmi: „Portúgal þarf enga aðstoð."
Blaðamaður e24.se segir, að þegar þessar yfirlýsingar séu lesnar minni þær óneitanlega á yfirlýsingar Mohammeds Said as-Sahafs, upplýsingamálaráðherra Írans, sem hélt því meðal annars fram að innrás Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í Írak væri sjónhverfing og að Írakar væru að útrýma innrásarherjunum. Daginn sem bandarískir hermenn réðust inn í Bagdad kom Sahaf fram í sjónvarpsviðtali og fullyrti að engir bandarískir hermenn væru í borginni þótt bandarískir skriðdrekar sæjust í bakgrunninum.
E24.se segir að Van Rompuy sé ekki eini forustumaður Evrópusambandsins, sem reyni að gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem aðildarríkin glíma við. José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu, og leiðtogar einstakra ríkja hafi tekið í sama streng.