Skuldatryggingarálagið á skuldabréf spænska ríkisins til tíu ára hélt áfram að hækka í dag og er nú 2,60% hærra en álagið á þýsk ríkisskuldabréf. Þykir þetta til marks um þá miklu spennu sem er í málum evru-svæðisins vegna mikilla skulda ríkja innan bandalagsins.