Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2010 var útflutningur fob 48,3 milljarðar króna og innflutningur fob tæpir 38,0 milljarðar króna. Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 10,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.