Verð á hráolíu hefur lækkað í dag eftir hækkun í byrjun vikunnar og er það komið í rúma 88 Bandaríkjadali tunnan á ný eftir að hafa farið yfir 90 dali á Nymex markaðnum á mánudag. Verð sem ekki hefur sést síðan í byrjun október 2008.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 62 sent og er 90,77 dalir tunnan. Á gær fór það um tíma í 92,86 dali tunnan sem er það hæsta sem fengist hefur fyrir Norðursjávarolíu í 26 mánuði.