Kanadíska orkufyritækið Magma Energy Corp. hefur uppfyllt allar skuldbindingar sínar í tengslum við kaupin á 98,53% hlut í HS Orku. Fram kemur í tilkynningu frá Magma að félagið hafi gefið út rúmlega 24,8 milljónir hluta í Magma til dótturfélags Geysis Green Energy sem hluta af kaupverðinu.