Rússneski auðjöfurinn Alisjer Usmanov er nú orðinn stærsti einstaki hluthafinn í Facebook, utan Bandaríkjanna. Fyrirtæki Usmanovs DST Global/Mail.ru keypti í gær um 0,25% hlut í Facebook fyrir um 125 milljónir dollara og átti fyrir um 10%. Usmanov var stór viðskiptavinur Kaupþings fyrir hrun.
Vefurinn Business.dk greinir frá því að fyrirtæki Usmanovs hafi keypt mikið af óskráðum hlutabréfum í Facebook þegar fyrrverandi og núverandi starfsmenn Facebook hafa selt hluti sína.
Usmanov átti 1,48% hlut í Kaupþingi haustið 2008, samkvæmt rannsóknarskýrslu Alþingis. Þar er hann einnig í 17. sæti á lista yfir 20 stærstu skuldarana út frá samanlögðum útlánum íslenska hluta bankanna í lok september 2008. Samkvæmt skýrslunni skuldaði Usmanov þá 34,5 milljarða króna.
Ríkisútvarpið greindi í gærkvöldi frá því að rétt fyrir hrun hafi lánanefnd Kaupþings samþykkt að lána Usmanov andvirði 270 milljarða króna. RÚV hefur ekki fengið staðfest hvort lánið stóra var greitt út.
Þá á Usmanov tæplega þriðjungshlut í fótboltaveldinu Arsenal og er stærsti einstaki hluthafinn. Hann hefur lýst hug á að eignast félagið allt. Hann á einnig fjölmiðlaveldið Naspers í Suður-Afríku.
Hjá systurfélögunum DST og Mail.ru starfa nú um 1.800 manns. Félögin eru mjög umsvifamikil í rekstri netfyrirtækja. DST hét áður Digital Sky Technologies.