Hanna Björk Ragnarsdóttir viðskiptafræðingur verður ráðin bankastjóri Sparibankans samkvæmt heimildum mbl.is. Sparifélagið hf. undirbýr nú stofnun bankans og var auglýst eftir forstjóra í byrjun desember.
Skv. upplýsingum mbl.is er unnið að því að ganga frá ráðningunni, en stefnt er að því að greina formlega frá henni í byrjun næstu viku.
Á vef Spara.is segir að í framhaldinu verði ítarleg útboðslýsing til almennrar hlutafjársöfnunar lögð fyrir Fjármálaeftirlitið. Að fegnu samþykki FME verði farið í hlutafjárútboð þar sem almenningi jafnt sem stofnfjárfestum verði boðið að koma að stofnun bankans.
Safnað verði einum milljarði í hlutafé en
lagmarkskröfur til viðskiptabanka séu 5 milljónir evra. Að lokinni
hlutafjársöfnun verði farið í formlegt umsóknarferli sem getur tekið
allt að 12 mánuði.