Eignir lífeyrissjóða jukust um 2,2%

Hrein eign líf­eyr­is­sjóða í lok nóv­em­ber var 1893,5 millj­arðar króna og hækkaði um 41,2 millj­arða í mánuðinum eða um 2,2%.

Að sögn Seðlabank­ans hækkaði inn­lend verðbréfa­eign líf­eyr­is­sjóðanna um tæpa 62 millj­arða í nóv­em­ber. Hækk­un­ina má að stór­um hluta rekja til aukn­ing­ar á eign líf­eyr­is­sjóða á Íbúðarbréf­um um 50 millj­arða. Er­lend verðbréfa­eign lækkaði í nóv­em­ber um 27 millj­arða. 

Sé miðað við nóv­em­ber 2009 hef­ur hrein eign líf­eyr­is­sjóða hækkað um 144,8 millj­arða eða 8,3%.

Vef­ur Seðlabank­ans

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK