Greining Íslandsbanka segir, að ekkert lát sé hækkun landbúnaðarhrávara á alþjóðlegum mörkuðum, og sú þróun gæti haft nokkur áhrif á verðlagsþróun hérlendis á næstunni. Til að mynda sé verð á hveiti nú hærra en það hafi verið undanfarin tvö og hálft ár eftir snarpa hækkun síðustu daga.
Hveitiverð hækkaði verulega á áliðnu síðasta sumri og hefur uppskerubrestur vegna rysjóttrar veðráttu í stórum hveitiútflutningslöndum á borð við Rússland og Ástralíu haft sitt að segja.
Íslandsbanki segir, að í krónum talið hafi hveitiverð hækkað um 90% frá miðju síðasta ári. Aðrar kornvörur hafi einnig margar hverjar hækkað verulega, en á sama tíma hafi innlent verð á brauði og kornvörum lítið breyst, miðað við mælingu Hagstofunnar.
Segir Greining Íslandsbanka, að
mæstu mánuði megi gera ráð fyrir að
verðbólguþrýstingur hér á landi vegna þessarar þróunar kunni að verða allnokkur.