Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, hefur verið ráðinn einn af aðstoðarforstjórum kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, móðurfélags HS Orku.
Fram kemur í tilkynningu frá Magna, að Ásgeir muni stýra framkvæmda- og þróunardeild og taka við af Andreu Zaradic, sem sagði upp störfum hjá fyrirtækinu.