Títan fjárfestingarfélag ehf. og Samherji hf. leiða breiðan hóp öflugra fjárfesta í hlutafjáraukningu MP banka að upphæð 5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP banka.
Segir að stjórn bankans og nýir fjárfestar hafi undirritað samkomulag þess efnis með fyrirvara um frekari áreiðanleikakönnun, samþykki FME og hluthafafundar MP banka.
Gert er ráð fyrir að ferlinu ljúki innan fjögurra vikna.