Gengi krónunnar stöðugt

Gengi krónunnar hefur haldist nokkuð stöðugt eftir nokkra lækkun fyrri hluta janúar. Króna lækkaði um 3,5% gagnvart evru fyrstu þrjár vikur ársins og hefur síðan lækkað um 0,8% til viðbótar.

Greining Íslandsbanka segir í Morgunkorni sínu, að helstu hugsanlegu ástæður lækkunar krónunnar á fyrstu vikum ársins séu tímabundnar að mestu. Megi þar nefna árstíðarsveiflu í gjaldeyristekjum af ferðamönnum og áhrif af kaupum Seðlabankans á gjaldeyri af bönkunum í lok síðasta árs.

Önnur áhrif og varanlegri kunni að vera vaxtagreiðslur af innlendum ríkisskuldabréfum til erlendra aðila og minni munur á innlendum og erlendum vöxtum sem komið hefur til vegna vaxtalækkana Seðlabankans undanfarið.

Vaxandi velta á millibankamarkaði

Íslandsbanki segir, að veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri hafi verið lítil undanfarið. Í janúar var hún 22 milljónir evra og tæplega 40 milljónir evra í febrúar. Veltan það sem af er ári hefur samt verið talsvert yfir því sem hún var á sama tíma fyrir ári en samanlögð velta á millibankamarkaðinum með gjaldeyri á þessum í fyrra var 11 milljónir evra.

Stór þáttur í þessum vexti eru kaup Seðlabankans á gjaldeyri sem hafa staðið yfir frá því í ágúst í fyrra. Segir í Morgunkorni, að Seðlabankinn eigi þannig um fimmtung af veltunni á gjaldeyrismarkaðinum á fyrstu 2 mánuðum þessa árs en hann átti engin viðskipti á millibankamarkaðinum með gjaldeyri á þessu tímabili í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK