Innistæður í SpKef eru tryggar

Engin ástæða er fyrir innistæðueigendur í SpKef að óttast um innistæður sínar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu.

„Vegna fréttaflutnings af málefnum SpKef í dag vill fjármálaráðuneytið taka fram að hinn nýi sparisjóður, er tók við innistæðum úr Sparisjóði Keflavíkur sem nú er í slitameðferð, er að fullu í eigu ríkisins og unnið er að því að tryggja til frambúðar og með fullnægjandi fjármögnun þá starfsemi sem í hlut á. Verður hagsmuna allra sem hlut eiga að máli gætt sem frekast er kostur.

Engin ástæða er því fyrir innstæðueigendur að óttast um fjármuni sína. Yfirlýsing stjórnvalda frá haustinu 2008, sem síðan hefur verið ítrekuð af núverandi ríkisstjórn, um að allar innstæður í íslenskum bönkum og sparisjóðum séu tryggðar, er í fullu gildi,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins. Ekkert segir nánar um framtíð sjóðsins, en fyrr í dag var sagt frá því að viðræður stæðu yfir um sameiningu SpKef við Landsbankann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK