3,5% samdráttur árið 2010

Iðnframleiðsla er stór hluti landsframleiðslunnar.
Iðnframleiðsla er stór hluti landsframleiðslunnar.

Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 3,5% á árinu 2010 samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands. Þetta er verulega minni samdráttur en árið 2009 þegar hann nam 6,9%.  

Þessi niðurstaða er í samræmi við spár stofnana og sérfræðinga hér á landi sem spáðu því almennt, að samdráttur á síðasta ári myndi vera á bilinu 2,7% til 3,7%.

Hagstofan segir, að landsframleiðsla hafi dregist saman um 1,5% að raungildi milli 3. og 4. ársfjórðungs 2010. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 1,6%. Einkaneyslan jókst um 1,6% og fjárfestingin um 14,9%. Samneysla dróst hins vegar saman um 0,5%. Þá jókst útflutningur um 3% og innflutningur um 10% á sama tímabili.

Síðasta ári varð samdráttur í öllum þáttum þjóðarútgjalda. Einkaneysla dróst saman um 0,2%, samneysla um 3,2% og fjárfesting um 8,1%. Aftur á móti jókst útflutningur um 1,1% og innflutningur um 3,9%. Þrátt fyrir þessa þróun er verulegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2010, eða 162 milljarðar króna. 

Landsframleiðsla á fjórða ársfjórðungi 2010

Landsframleiðsla árið 2010

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK