Laun stjórnamanna í kortafyrirtækinu Valitor, áður Visa Ísland, voru nýverið hækkuð um fjórðung og laun stjórnarformanns um helming. Sjónvarpið greindi frá þessu en Valitor hagnaðist um rúman milljarð króna á síðasta ári.
Stjórnarlaunin voru ákveðin á aðalfundi fyrirtækisins í síðustu viku. Arion á 52% hlut í Valitor, Landsbankinn 38%, Byr sparisjóður 7% en önnur fjármálafyrirtæki minni hlut. Samkvæmt frétt Sjónvarpsins mætti Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, á aðalfundinn fyrir hönd bankans, en Höskuldur var áður framkvæmdastjóri Valitors.
Þóknun fyrir setu í stjórn Valitors var hækkuð í 150 þúsund krónur á mánuði en þóknun stjórnarformanns var hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund á mánuði. Fulltrúar Landsbankans í stjórn sátu hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Fulltrúar Arion banka og Byrs samþykktu launahækkunina, en samkvæmt frétt Sjónvarpsins rennur þóknun fulltrúa Arion ekki beint til þeirra heldur til bankans.